Já sjálfur úrslitaleikurinn var í gær og var mjög gaman að honum
og ég segi bara til hamingju ítalir
En það sem mikið hefur verið rætt um og skyggði á leikinn í gær
var atvikið á milli Marco Materazzi og Zinedine Zidane á 110 mínútu
seinni hálfleiks framlengingar. Zidane skallaði af afli í bringuna
á Materazzi , væntanlega eftir að Marco hafði sagt eitthvað
alvarlegt við hann og var í kjölfarið rekinn útaf.
Mikið hefir verið rætt um þetta mál í fjölmiðlum og í frönskum
fjölmiðlum var Zidane rakkaður niður í dag. Það vakti athygli að
Zidane ferðaðist ekki heim með liðsfélögum sínum eftir
úrslitaleikinn þar sem að hann þurfti að labba í fússi framjá Jules
Rimet styttunni og fékk hann ekki einu sinni að taka við
silfurverðlaununum í leikslok.
Þetta á Materazzi að hafa sagt skv. nokkrum fjölmiðlum eftir að
hafa klipið í geirvörtu Zizou:
Zidane bað Materazzi, með því að taka í treyjuna
sína: - "Ordinanza de tirare il costume " (hættu að tosa í treyjuna
mína )
Þá svarar Materazzi:
- "Taciti, enculo, hai solamente cio che merite..." (Þegiðu
helvítis hálfviti, þú færð einungis það sem þú átt skilið...)
- "si e cio..." (já... var það ekki...) svarar
Zidane
Það var þá er Zidane byrjar að labba í burtu og
ítalski varnarmaðurinn heldur áfram, labbandi á eftir honum:
- "meritate tutti ciò, voi gli enculato di musulmani, sporchi
terroristici"
(þið eigið skilið allt þetta, helvítis múslímar, fokking
hriðjuverkamenn)
Það var þá að Zidane, ofboðið, þreyttur, andlega
beygður, að hann skallar Materazzi í brjóstkassann - eins
óafsakanlegt og það er - þá er það skiljanlegt.
Zidane er Berberi frá Alsír sem er hérað í
norður-Alsír Þetta er þjóðaflokkur sem býr í fjöllunum, er evrópskt
í útliti og einkar farsælt og friðsælt hérað.
Svo segja sumir að marco hafi sagt eitthvað um
systur eða móður Zidane. Þetta var nátturlega skiljanlegt ef að
Materazzi hefur sagt þetta ofangreinda við hann, margir hefðu
brugðist eins við
En þetta atvik skyggði á leikinn og því miður
endaði ferill hins magnaða knattspyrnumanns Zinedine Zidane svona..

Hér er klippa af atvikinu:
http://youtube.com/watch?v=eYNH1c1d6Ks&search=zidane